6/09/2008

Hannah Kasper



Listamaður Gestavinnustofu Gilfélagsins í júní er Hannah Kasper. Hún heldur sýningu í gallerí BOX 21. – 29. júní.

Innblásin af draumum, bíómyndum, gömlum byggingum, bernskuminningum og ímyndunum eru málverk Hönnuh Kasper af yfirgefnu innanhúsrými laustengd atburðarrás í ímynduðu ævintýri. Samhengi ævintýrisins ræðst af nærveru óséðrar söguhetjunnar sem er í stöðugri leit að einhverju eða einhverjum. Viðfangsefni málverkanna eru leikmunir sem tengjast atburðarrás sögunnar og gjarnan minningum, draumum eða ótta listamannsins. Rýmið er notað til að búa til leiksvið þar sem áhorfendur geta nýtt sér sjónrænar vísbendingar sem gefnar eru og skapað þær frásagnir sem þeir vilja.
Hér er á ferðinni hugleiðing um hið yfirgefna og jafnframt afneitun vitræns raunsæis en einnig samspils ljóss og sjónarhorns. Málningin er lagskipt og stundum skafin upp til að afhjúpa teikninguna eða yfirborð viðarins sem er undirliggjandi eins og beinagrind yfirgefinnar byggingar eða þokukenndrar minningar.
Ákvörðunin um að myndgera umhverfi sem byggist á ímyndunarafli umbreytir rýminu af meðvitaðu óraunsæi.
Hannah Kasper er fædd í
New York 1981. Hún útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi og er með BFA gráðu í málaralist úr Tyler School of Art í Philadelphia og Róm.

Hannah Kasper is a guest in our studio in june. She is having an exhibit in Gallery BOX in june 21 – 29.

Inspired by dreams, movies, old buildings, childhood memory and fiction, Hannah Kasper’s paintings of vacant interiors are loosely episodic scenes of an imagined adventure. The constant in this adventure is an unseen protagonist who is searching for something or someone. Objects in the paintings are props that allude to the actions of the story, and often to the artist’s own memories, dreams and fears. The interior is used to create a stage upon which viewers can take the visual clues provided and project the narratives they wish -- to look for what is missing.
There is consideration toward the concept of ruin and abandon, as well as a denial of logical realism such as light sources or perspective. Paint is layered and sometimes peeled off to reveal drawing or wood underneath, like the skeleton of an abandoned building or a blurred memory. The decision to depict an environment that is based in fantasy renders the space decidedly unreal.
Hannah Kasper was born in
New York in 1981. She received her MFA from Glasgow School of Art in Scotland and her BFA in Painting from Tyler School of Art in Philadelphia and Rome.